Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka hreppti aðalverðlaun Félags kvenna í atvinnulífinu í gær og þykir skara fram úr á meðal kvenna sem sitja við stjórnvölinn hjá íslenskum fyrirtækjum.
Verðlaunin voru veitt í Norðurljósasal Hörpu síðdegis í gær að viðstöddu fjölmenni. Heiðursverðlaun FKA hreppti Sigríður Vilhjálmsdóttir, einn stofnanda Hótels Geysis í Haukadal sem er á meðal helstu frumherja landsmanna í ferðaþjónustu. Hvatningarverðlaun FKA komu í hlut Kolbrúnar Hrafnkelsdóttur, stofnanda Florealis, en fyrirtæki hennar hefur vakið mikla athygli fyrir að vinna lyf úr íslenskum lækningajurtum.
Birna Einarsdóttir sagði í þakkarræðu sinni að hún væri á hverjum degi studd af þúsund starfsmönnum - og það mætti aldrei gleymast; allt þetta starfsfólk léti hana líta vel út, en árangur sinn og annarra sem næðu langt við stjórnvöl fyrirtækja mætti í öllum tilvikum rekja til mikillar vinnu, þar væri aldrei hægt að stytta sér leið.
Umsögn dómnefndar er á þessa leið: \"Birna var innanbúðar í bankakerfinu á einhverjum mestu og erfiðustu umbrotatímum í íslensku efnahagslífi. Hún tók við stjórnartaumunum þegar óvissan var allsráðandi í þjóðfélaginu og starfsfólk jafnt sem viðskiptavinir uggandi um sinn hag. Birna einsetti sér frá upphafi að þjappa starfsmönnum bankans saman og telja í þá kjark. Saman lögðu þau sig síðan fram um að greiða úr þeim vandamálum sem fyrir lágu. Þannig ávann hún sér virðingu og traust viðskiptavina og samstarfsfólks sem lýsir henni sem metnaðarfullri en mannúðlegri, stefnufastri en sveigjanlegri í senn.\"
Við athöfnina í dag flutti Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, formaður FKA ávarp og brýndi kynsystur sínar í atvinnulífinu til dáða - og það gerði ekki síður Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra sem afhenti verðlaunin eins og tvö síðustu tvö ár.
Og það var einmitt verðlaunahafinn Birna Einarsdóttir sem hvatti kvenráðherrann til dáða í jafnréttismálunum; hún mætti aldrei slá af kynjakvótanum í stjórnum fyrirtækja, stórra sem smárrra, en fram kom við verðlaunaafhendinguna í dag að þar mega smærri fyrirtækin girða sig mun betur í brók.