Um fjörutíu kjarasamningar eru lausir eða losna á þessu ári þar sem kjör tuttugu þúsund starfsmanna eru undir. Meðal þeirra eru samningar BHM og grunnskólakennara auk flugvirkaj og flugmanna.
Búast má við líflegum tíma í kjaramálum það sem eftir er ársins og jafnvel enn lengra. Frá þessu er sagt á vef RÚV.
Laun á almennum vinnumarkaði hækkuðu um 4,5% hinn 1.maí samkvæmt gildandi kjarasamningum. Þetta er rífleg launahækkun ef horft er til nágrannalandanna.
Í Svíþjóð hækka laun um 6,5,% á þremur árum til vors 2020 og í Noregi hækka laun um 2,4% á þessu ári.
rtá
Nánar www.ruv.is www.sa.is