Fjórtán yfirmönnum hjá borginni sagt upp

Fjórtán stöður yfirmanna hjá velferðarsviði Reykjavíkurborgar verða lögð niður. Þetta kemur fram í svari borgarinnar við fyrirspurn Mannlífs. Ástæðan mun vara umfangsmiklar breytingar á sviðinu.

„Tvær þjónustumiðstöðvar hafa til dæmis verið sameinaðar og ný rafræn þjónustumiðstöð sett á laggirnar sem tekur til starfa um áramót,“ segir í svarinu.

„Það eru farsældarlög, stafræn umbreyting og ný velferðarstefna Reykjavíkurborgar sem knýja á um þessar breytingar. Nýjar og breyttar stöður verða auglýstar um helgina og við gerum ráð fyrir að margir sem sinna þeim störfum sem lögð verða niður verði í hópi umsækjenda um þær.

Þess má geta að á velferðarsviði starfa um 3.500 manns og á annað hundrað stjórnendur. Þessar breytingar taka fyrst og fremst til þjónustumiðstöðva.“