Frá árinu 2000 hafa flest slys á einbreiðum brúm orðið á brúnni yfir Núpsvötn, samtals fjórtán og þar af tvö alvarleg. Þetta segir Guðmundur Valur Guðmundsson, forstöðumaður hönnunardeildar Vegagerðarinnar, í samtali við Mbl.is og bætir við að hvorki brúin né vegrið hennar uppfylli nýjustu staðla.
Hann segir einnig að átta af slysunum fjórtán hafi orðið frá árinu 2015 og að hann telji þetta vera einu einbreiðu brúna sem væri með fleiri en tíu slys frá aldamótum. Því sé hún í forgangi þegar kemur að úrbótum.
Þrír eru látnir og fjórir alvarlega slasaðir eftir að bíll fór ofan á vegrið og fram af brúnni yfir Núpsvötn á Skeiðarársandi í gærmorgun. Um er að ræða tvær breskar fjölskyldur og létust tvær konur og ungt barn. Tveir karlar og tvö börn á aldrinum 7 og 9 ára voru flutt alvarlega slösuð á spítala í gær. Sveinn Kristján Rúnarsson yfirlögregluþjónn á Hvolsvelli segir í samtali við RÚV að lögreglan vonist til þess að geta rætt við karlana tvo í dag.