Fjórtán prósenta launamunur kynjanna

Kynbundinn launamunur minnkar ekki, samkvæmt árlegri launakönnun meðal félaga VR sem birt er í dag. Launamunurinn jafngildir því að VR konur væru ólaunaðar í 36 daga á ári.            

Konur eru að jafnaði með 14,2 prósent lægri heildarlaun en karlar og kynbundinn launamunur, það er launamunur sem ekki er hægt að skýra með neinu öðru en kynferði, er 10 prósent en var 9,9 prósent í síðustu könnun.  Ef litið er til grunnlauna eru konur með 12,2 prósent lægri laun en karlar og þegar búið er að taka tillit til annarra þátta sem hafa áhrif á launin situr eftir 9,9 prósent kynbundinn munur á grunnlaunum. Umtalsverður munur er á kynjunum hvað varðar hlunnindi eins og símakostnað, líkamsræktarstyrki eða gsm síma. Þannig fá  87 prósent karla slík hlunnindi en 74 prósent kvenna. 

Í tilkynningu VR segir að síðan 2009 hafi kynbundinn launamunur verið í kringum 10 prósent.

Ólafía B. Rafnsdóttir formaður VR segir vísbendingar um að launamunur kynjanna haldist í hendur við sveiflur í hagkerfinu, hann aukist í uppsveiflu en minnki í samdrætti. Þannig hafi dregið heldur úr launamuni strax eftir hrun en nú sé margt sem bendi til að hann sé aftur að aukast.

Frá janúar 2015 til apríl 2016 hækkuðu grunnlaun félagsmanna VR um 14,3 prosent og heildarlaun um 15,8 prósent sem er í takt við launavísitölu Hagstofunnar.