Linda ræðir við Halldór Friðrik Þorsteinsson sem gefur nú út bók um sex mánaða ferðalag sitt til Afríku, til fjórtán landa álfunnar. Ekki í fyrsta sinn sem Halldór fer á þvæling um fjarlægar álfur. Bókin hans um Afríkuferðina nefnist Rétt undir sólinni en þar segir maður frá sem vill umfram allt læra af öðru fólki sem gistir jörðina með honum.
Sigmundur Ernir kynnir sér fjallaklifur sem sport þeirra sem vilja fara í hættulegri ferðalög upp um kletta og brattar hlíðar.
Norræna ferðaskrifstofan er ein elsta ferðaskrifstofa landsins. Linda fór þangað í heimsókn en frá því að selja eingöngu miða í Norrænu eru nú seldar ferðir með 6 stjörnu skemmtiferðaskipum vítt og breitt um heiminn.
Hvernig var sumarið hjá björgunarsveitunum? Jónas Guðmundsson sem m.a. fer fyrir hálendisvakt Landsbjargar sest hjá Sigmundi Erni og fer yfir útköll sumarsins ásamt fleiru.