Fjórir vinnustaðir hafa verið valdir til að taka þátt í tilraunaverkefni ríkisins og BSRB um styttingu vinnuvikunnar. Markmiðið er að kanna hvort stytting vinnuviku leiði til gagnkvæms ávinnings starfsmanna og viðkomandi vinnustaða.
Þetta kemur fram í tilkynningu velferðarráðuneytisins.
Vinnustaðirnir eru allt ríkisstofnanir. Þetta eru Lögreglustjórinn á Vestfjörðum, Ríkisskattstjóri, Útlendingastofnun og Þjóðskrá. Tilraunaverkefnið mun standa í eitt ár, frá 1. apríl næstkomandi. Vinnustundum starfsmanna verður fækkað úr 40 á viku niður í 36 stundir án launaskerðingar.
Rannsakað verður hver áhrif styttingar vinnutímans verða á gæði og hagkvæmni þjónustu sem vinnustaðirnir veita, auk áhrifa á vellíðan starfsmanna og starfsanda. Sambærilegar mælingar verða gerðar á vinnustöðum þar sem vinnuvikan verður óbreytt til að fá samanburð.
Verkefnið kemur í kjölfar viljayfirlýsingar ríkisstjórnarinnar í lok október 2015 í tengslum við gerð kjarasamninga ríkisins við aðildarfélög BSRB.