Fjórir hætt komnir í reynisfjöru

Fjórir menn voru í bráðri lífshættu í Reynisfjöru í gær þegar stór alda hreif þá með sér. Þrír mannanna, sem starfa við ferðaþjónustu fóru niður í fjöruna til að vara ferðamann við, sem þeir sáu að væri í hættu án þess að gera sér grein fyrir því. Í því hreif stór alda þá alla fjóra með sér.
 

\"Félagar mínir fara þarna niður eftir til að vara mann sem stendur í fjörunni við. Hann er eitthvað að dunda þarna niðri í fjöru. Þeir hlaupa þarna eftir honum en í því kemur alda og hann missir myndavélina. Þeir draga hann þarna upp eftir og þá kemur þessi risaalda sem tekur þá alla fjóra inn í hellinn,“ segir Marten Ingi Lövdahl í morgunþætti RÚV í morgun, en hann segir mennina hafa lýst reynslu sinni svo, að það hefði verið eins og að vera inni í þvottavél. Ferðamaðurinn hafi verið frá Kanada og hann hefði ekki gert sér neina grein fyrir því að svæðið gæti verið hættulegt. 

Marten segir við RÚV að skömmu áður hafi hópur fólks verið á gangi fyrir framan hellinn: \"Þetta er svo hættulegt svæði að fólk á bara ekkert að vera þarna á ferð nema með leiðsögumönnum. Það eru einhverjir hundruðir metra upp í hellinn frá sjónum. Menn lenda aftur og aftur í ógöngum þarna því þeir skynja ekki hættuna,“ segir Martin og bætir við að hann telji að það eigi að loka svæðinu á dögum sem þessum, þegar mikið brim er. Lítið aðvörunarskilti í fjörunni dugi ekki til þess að ferðamenn skynji hættuna þegar mikill sjávargangur er.