Fjórir karlmenn voru í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 7. febrúar næstkomandi á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Var það gert í þágu rannsóknar hennar á skipulagðri brotastarfsemi, sem snýr meðal annars að framleiðslu fíkniefna og peningaþvættis. Fjórmenningarnir voru handteknir um þar síðustu helgi samhliða mjög umfangsmiklum aðgerðum lögreglu, en ráðist var í húsleitir víða á höfuðborgarsvæðinu. Lagt var hald á umtalsvert magn af fíkniefnum, vopnum og fjármunum. Tveir til viðbótar sátu í gæsluvarðhaldi í tengslum við málið, en ekki var lögð fram krafa um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir þeim.
Samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu miðar rannsókninni ágætlega, en lögreglan segist ekki geta veitt fjölmiðlum frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.