\"Þingvellir sem sögustaður á bæði sínar björtu og dökku hliðar og þær síðarnefndu tengjast meira og minna öllum þeim fjölda af aftökum sem þar fór fram mjög víðsvegar á svæðinu,\" segir Reynir Ingibjartsson í heilsu- og útivistarþættinum Lífsstíl í kvöld.
Þart ræðir hann um nýja bók sína um gönguleiðir á Þingvallasvæðinu sem er sjötta bók hans í glæsilegri ritröð um gönguleiðir á öllu suðvestanverðu landinu. Það sem kom Reyni hvað mest á óvart þegar hann var að kortleggja svæðið allt síðasta sumar hvað aftökurnar fóru víða fram á Þingvallasvæðinu: \"Menn þekkja nú flestir Drekkingarhyl þar sem konum var varpað í kalda ána. En svo eru Gálgaklettar þar sem þjófarnir voru hengdir, eins er til Brennugjá þar sem fólk var brennt á galdrafársárunum og loks er það Höggstokkseyri þar sem að líkindum virðulegustu sakamennirnir voru afhausaðir,\" segir Reynir í þættinum sem segir seinni tíma fólki að á þessu svæði hafi fólk því bæði verið brennt, hengt, hálshöggvið og því drekkt.
Hann segir allt þetta fólk hafa verið dæmt á Lögbergi og því hafi fullnustunnar ekki verið langt að sækja. Heimildir um þessar aftökur séu af skornum skammti en þó sé til ein sem segi af 18 konum sem settar hafi verið í poka samtímis og hent út í hylinn: \"Þetta hefur náttúrlega verið alveg skelfilegur tími,\" segir Reynir en minnir engu að síður á að þessir staðir séu ekkert síðri sögustaðir en þeir vanalegu á Þingvöllum sem yfirleitt tengist sigrum og merkum ákvörðunum. Svæðið allt sé raunar vel fallið til gönguferða um stíga og leiðir sem aðeins örfáir fari um nú til dags en opni fólki nýja heima í þjóðgarðinum.
Lífsstíll er frumsýndur klukkan 20.00 í kvöld.