Fjórflokkurinn er alveg ráðþrota

Grétar Þór Eyþórsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Akureyri og sá maður sem hvað best þekkir til þróunar stjórnmála hér á landi metur það svo að fjórflokkurinn standi alveg ráðþrota frammi fyrir sívaxandi fylgi Pírata.

\"Maður sér það ekki í hendi sér hvað fjórflokkurinn hefur til að breyta þessu landslagi,\" segir Grétar Þór í Fréttablaðinu í morgun og bætir við: \"Svo virðist vera sem þeir séu algerlega ráðþrota gagnvart fylgisaukningu Pírata,\" og hann telur ekki miklar líkur á að sitjandi ríkisstjórn geti gert mikið til að breyta því landslagi sem upp er komið í íslenskum stjórnmálum: \"Sitjandi ríkisstjórn getur að mínu mati ekki gert mikið til að breyta þessu. Hún hefur spilað út sínum stærstu trompum, skuldaleiðréttingunni og afnám gjaldeyrishafta er hafið. Ekki eru þeir flokkar að skora á því,\" segir prófessorinn.

\"Eins merkilegt og það er þá byrjaði fylgi Pírata að aukast mánuði eftir að skuldaleiðréttingin leit dagsins,\" segir Grétar Þór og hnykkir á: \"Hvort eitthvað orsakasamband sé þar á milli veit ég hins vegar ekki.\"

Píratar mælast nú með 35,9% fylgi, hafa bætt við sig 3,6% frá síðasta mánuði og eru eini flokkurinn sem er á uppleið í íslenskum stjórnmálum ásamt VG sem mælist nú 11,8% og fer upp um 2,9%. Framsókn er með 11,1%, dalar um 1,3%, Samfylkingin er kominn niður í 9,3%, dalar um 2,9%, Sjálfstæðisflokkurinn er með 21,6%, dalar um 2,4% og Björt framtíð er enn sem fyrr með minna fylgi en serm nemur þingflokki, fer niður um 0,6% og mælist nú 4,4%.