Þjóðmálarýnirinn Ólafur Jón Sívertsen sem fer alla jafna mikinn í pistlaskrifum á hringbraut.is segir fjórflokkinn á förum, sameiningu vinstrimanna misheppnaða, íhaldið sé andsetið í spennitreyju einangrunarafla og framsókn ekkert annað en hentistefnuflokk.
Hann fer yfir pólitíska sviðið sviðið í nýjasta pisltinum sínum á vefnum - og er afdráttarlaus, allir partar fjórflokksins hafi fengið sín tækifæri en klúðrað þeim með svo afgerandi hætti að kjósendur láti ekki bjóða sér upp á meira; Sjálfstæðisflokkurinn sé að festast í 24% fylgi, Framsókn í 10-12%, Samfylkingin í 12-14% og Vinstri grænir eru neðan við 10%. Og hann fellir dóma: \"Þó skipt hafi verið um nöfn á Samfylkingu og VG, þá eru þeir komnir “heim” í fylgi og stefnumál sinna forvera, krata og komma. Ferð þeirra til sameiningar vinstri manna var ekki til fjár. Framsókn skiptir ekki um nafn en breytir um stefnu eftir því hvernig vindar blása. Hann er hentistefnuflokkur, nú eins og áður, og hann er “opinn á báða enda” eins og jafnan.\"
Um íhaldið segir Ólafur Jón, sem sjálfur gjörþekkir íslenska stjórnsýslu: \"Sjálfstæðisflokkurinn er að margra mati andsetinn. Hann nýtur sín ekki vegna þess að stefnumál hans sem hafa dugað gegnum tíðina fá ekki notið sín. Forystan ræður ekki við hjörðina því hann hefur ekki döngun í sér til að segja einangrunaröflum stríð á hendur. Þess í stað velur hann að láta þau ráða för,\" með þeim afleiðingum, segir Ólafur Jón að fylgið minnkar jafnt og þétt.
Hann bendir á að fjórflokkurinn, D, B, S og VG, er samkvæmt nýrri skoðanakönnun með 57% fylgi. Það var 75% í kosningunum vorið 2013 og enn meira í kosningum vorið 2009 eða 90%. \"Með öðrum orðum: Fjórflokkurinn er að hrynja. Hann er á förum,\" skrifar Ólafur Jón.
Hann spáir því og byggir það á menntun sinni víða um lönd og þekkingu, að fjórflokkurinn sé smám saman að líða undir lok og að alveg nýjir flokkar komist til valda eftir næstu kosningar; Viðreisn muni þar gegna viðamiklu hlutverki, Píratar muni áfram njóta hylli - og: \"Eins eigum við eftir að sjá enn aðra nýja flokka koma fram og ná árangri.\"