Fjórflokkur: proppé gefur tóninn!

\"Björt framtíð er fyrst til að taka á sínum málum. Á landsfundi nú um helgina var alveg skipt um forystu þegar formaður og tveir aðrir helstu leiðtogar flokksins stigu niður og rýmdu sviðið fyrir nýju fólki.\"

Hér skrifar þjóðmálarýnirinn Ólafur Jón Sívertsen, einn innsti koppurinn í búrí íslenskrar stjórnsýslu og bendir á að umskiptin hjá Bjartri framtíð hafi farið friðsamlega fram þar sem persónur mátu flokkinn stærri en sjálfan sig: \"Það er því miður fátítt í íslenskum stjórnmálum þar sem eiginhagsmunagæslan kemur fyrst, flokkurinn síðan og þjóðarhagur rekur svo lestina,\" skrifar Ólafur Jón sem gjörþekkir íslensk stjórnmál.

\"Nú hljóta forystumenn hinna flokkanna að líta til fordæmis Bjartrar framtíðar og meta hvernig unnt er að bregðast við eða hvort eitthvað er hægt að gera. Hinir fjórir flokkarnir eru í djúpum dal og varla líður leiðtogum þeirra vel með þá stöðu,\" skrifar rýnirinn áfram og segir að ekki þyrfti að koma á óvart að frumkvæði Bjartrar framtíðar yrði til að snúa fylgisþróuninni þeim í hag undir forystu Óttars Proppé sem sé vinsæll og vel liðinn stjornmálamaður sem taki sig ekki of hátíðlega þó hann taki starf sitt sem alþingismaður alvarlega: \"Fari Björt framtíð aftur á flug, verður vandi hinna enn meiri,\" spáir Ólafur Jón.

Hann lítur yfir sviðið: \"Ljóst er að Samfylkingin er að skoða sín mál ofan í kjölinn enda veitir ekki af. Frumkvæði Bjartrar framtíðar hlýtur að hafa áhrif á vinnu og stefnumótun þar á bæ því ekki vilja menn sjá flokkinn koðna niður,\" sýnir Ólafi Jóni.

\"Hjá Framsókn virðist ekkert vera í gangi varðandi endurskipulagningu forystunnar. Flokkurinn er jafnfullur af hroka og sjálfsupphafningu og formaður hans. Flokksmenn trúa því að fyrir næstu kosningar geti Framsókn enn á ný dregið misdauðar kanínur upp úr hatti sínum,\" skrifar Ólafur Jón.

\"VG er í sjálfheldu. Formaður flokksins nýtur mesta fylgis allra formanna flokkanna en fylgið færist ekki yfir á flokkinn og er bundið við hennar persónu. Það er í sjálfu sér ekkert óeðlilegt að sósíalistaflokkur eins og VG njóti stuðnings tíunda hluta kjósenda. Þannig hefur það yfirleitt verið,\" sýnist pennanum.

Og svo er það íhaldið: \"Athyglin beinist enn sem komið er einkum að vandræðagangi út af embætti varaformanns. Hanna Birna Kristjánsdóttir núverandi varaformaður gefur kost á sér áfram. Hún lítur ekki þannig á að tími hennar sé liðinn í æðstu forystu flokksins þó svo hún hafi verið hrakinn úr ráðherraembætti. Hún telur sig svikna af samstarfsfólki og lítur þannig á að hún hafi ekki brotið af sér og verðskuldi ekki að víkja úr ríkisstjórn eða varaformennsku. Hún telur sig vera fórnarlamb og mun að óbreyttu koma til landsfundarins með það að leiðarljósi að láta landsfundarfulltrúa vorkenna sér. Hún mun benda á að hún hafi fórnað ráðherradómi, að hún hafi vikið til að róa ástandið, að hún hafi fórnað sér fyrir flokkshagsmuni, að hún hafi ekki unnið til neins ills og hún mun biðla lil landsfundarins um að vera endurkjörin og fá þar með uppreisn æru í flokknum. Með því ætlar hún að sækja endurnýjað umboð flokksins.\"

Hægt er að lesa alla greiningu Ólafs Jón í pistladálkinum hér til hliðar á forsíðunni á hringbraut.is.