Í fyrra störfuðu alls 19.804 eða tæp 25 prósent barna á íslenskum vinnumarkaði. Svipað hlutfall er á milli kynja. Starfandi börnum hefur fjölgað um rúmlega 3 prósent frá árinu 2015. Hins vegar hefur heildarfjöldi starfandi barna á vinnumarkaði dregist nokkuð saman frá árinu 2007 þegar alls 23.808 unnu eða um 30 prósent, samkvæmt nýjum tölum hagstofunnar.
Hagstofa Íslands birtir í fyrsta sinn hagtölur sem sérstaklega varða stöðu barna. Í fyrsta sinn er um að ræða samantekt upplýsinga sem sumar hverjar hafa áður birst en einnig nýjar upplýsingar svo sem um börn á vinnumarkaði. Þar kemur meðal annars fram að tæplega fjórðungur barna var í launuðu starfi á árinu 2017. Tölulegar upplýsingar um börn á Íslandi eru nú á einum stað á vef Hagstofunnar. Verkefnið er unnið í samstarfi við umboðsmann barna.