Fjórði pakkinn springur í texas

Pakki fullur af nöglum og járnarusli sprakk snemma í morgun á Fedex pakkadreifingastöð í San Antonio í Texas. Einn starfsmaður slasaðist, þó ekki alvarlega. Pakkinn átti að fara til Austin í Texas þar sem þrjár aðrar pakkasprengingar hafa orðið síðan í byrjun mánaðarins og orðið tveimur að bana. Pakkinn var á leið af einu færibandi á annað þegar hann sprakk.

Lögregluyfirvöld telja nú nokkuð víst að þau eigi í högg við raðsprengjubrjálæðing. Fórnarlömb sprenginganna í Austin hafa verið blökkumenn eða spænskumælandi fólk og því hafa vangaveltur verið uppi um að kynþáttahatur búi að baki. Í framhaldi af því hefur borið á gagnrýni á að Trump Bandaríkjaforseti hafi ekki séð ástæðu til að fordæma þessar sprengjuárásir.