Töluvert blendin viðhorf eru meðal landsmanna gagnvart því að Ísland taki á móti flóttamönnum frá Sýrlandi á næstu mánuðum, að því er fram kemur í frétt RÚV um könnunina í morgun. Samkvæmt henni eru 56,6% hlynnt móttöku þeirra en rösklega 22% andvíg því. Meira en fimmti hver Íslendingur vill ekki fá flóttamenn frá Sýrlandi. Konur eru hlynntari því en karlar og þeir yngri miklu frekar en þeir sem eldri eru. Þá eru Reykvíkingar frekar reiðubúnir að taka á móti flóttamönnum en íbúar á landsbyggðinni, og þeir háskólamenntuðu fremur en aðrir. Kjósendur vinstri-grænna eru jákvæðastir gagnvart komu flóttamanna frá Sýrlandi á næstu mánuðum, fast á hæla þeim koma kjósendur Samfylkingar og Pírata. Einungis 22% kjósenda Framsóknarflokksins eru hlynntir því að tekið verði á móti sýrlensku flóttamönnunum. Mun fleiri kjósendur Sjálfstæðisflokksins eru því hlynntir, eða 38%, og 59% kjósenda Bjartrar framtíðar. Þetta eru megindrættir þessarar könnunar Maskínu, sem gerð var dagana 4.-15.september. Svarendur voru 747.
Samkvæmt RÚV spurði Maskína líka þá sem á annað vildu taka á móti flóttamönnum frá Sýrlandi hversum mörgum Ísland ætti að taka á móti á næstu tveimur árum? Þegar lagður er saman fjöldi þeirra sem sögðust enga vilja fá næstu tvö árin – og þeirra sem vilja alls enga flóttamenn, þá er niðurstaðan 26,4% aðspurðra – meira en fjórði hver svarenda vill ekki neina flóttamenn frá Sýrlandi á næstu tveimur árum. Þeir svarendur sem vildu taka á móti þessu fólki á tveimur árum slógu sjálfir inn tölu. Niðurstaðan er sú í stuttu máli að Íslendingar vilja að jafnaði taka á móti 100 flóttamönnum frá Sýrlandi. Rétt er þó að taka fram að 25% segjast vilja taka á móti meira en 500 manns: 9,9% allt að 1.000, 5,5% allt að 2.000, og 9,6% fleirum en 2.000. Morgunvaktin á Rás 1 sagði frá könnun Maskínu, sem finna má á vef hennar: www.maskina.is