Fjórði hver alltaf með fjárhagsáhyggjur

Ef marka má óformlega viðhorfskönnun sem verið hefur á hringbraut.is síðustu daga hefur fjórðungur landsmanna daglegar fjárhagsáhyggjur. Þegar við bætast þau 50% sem segjast hafa sömu áhyggjur oft í mánuði má ljóst vera að peningavandræði hrjá langflesta landsmenn.


Í þessari könnun kemur fram að 17% aðspurðra segjast sjaldan hafa fjárhagsáhyggjur og 9% segjast laus við fjárhagsáhyggjur.


Miklar kröfur eru nú uppi í samfélaginu um að laga lágmarkslaun hér á landi og færa þau upp í 300 þúsund krónur, eða eitthvað í áttina að framfærsluviðmiði velferðarráðuneytisins. Þá eru ríkar kröfur innan fjölmargra stéttarfélaga um bættan hag innan sinna raða - og stefnir í fjölmennari verkföll á þessari vortíð en verið hefur um mjg langt árabil.