Fjórar meirihutastjórnir mögulegar

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, mun í dag tala við formenn allra þeirra flokka sem eiga sæti á Alþingi. Frá þeim minnsta til hins stærsta.

Einsog sjá má hér að neðan eru nokkrir möguleikar til að mynda meirihlutastjórn án aðkomu Sjálfstæðisflokks.

              
 35 manna ríkisstjórn   35 manna ríkisstjórn  34 manna ríkisstjórn   32 manna ríkisstjórn 
 FlokkarÞingmenn  FlokkarÞingmenn FlokkarÞingmenn  FlokkarÞingmenn
 VG10  VG10 VG10  VG10
 Píratar 10  Píratar 10 Píratar 10  Framsókn8
 Framsókn8  Framsókn8 Viðreisn7  Viðreisn7
 Björt framtíð4  Viðreisn7 Björt framtíð4  Björt framtíð4
 Samfylking3  Samtals35 Samfylking3  Samfylking3
 Samtals35     Samtals34  Samtals32
              

Hægt er að raða upp enn fleiri möguleikum en hér eru sýndir.

Áhrifamaður innan VG sagði í einkasamtali að sér litist ágætlega á Framsóknarflokkinn, oft hafi reynst vel að eiga samskipti við hann þegar kemur að félagshyggju.

Því kann að verða að flokkar þurfi að hafa fyrir því að komast í hugsanlega meirihlutastjórn undir forsæti Katrínar.

-sme