Fjör að færast í forsetaframboðsmálin

Ný nöfn alvöruframbjóðenda til forseta koma nú fram nánast á hverjum degi.

Hringbraut.is hefur að undanförnu verið með skoðanakannanir þar sem spurt hefur verið um fjóra hugsanlega frambjóðendur í hvert skipti.

Núna er í gangi könnun sem nefnir nöfn þriggja kvenna sem hafa komið inn í umræðuna á síðustu sólarhringum, auk Össurar Skarphéðinssonar sem hefur talsvert verið nefndur að undanförnu.

Eins og staðan er núna hefur Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir mest fylgi þeirra fjögurra en Össur, Salvör Nordal og Sigrún Stefánsdóttir eru á svipuðu róli.