Fjölskyldufaðir ósáttur við Þórólf eftir fjórða smitið í fjölskyldunni

Fjölskyldufaðir á höfuðborgarsvæðinu á í deilum við sóttvarnalækni eftir að hafa þrívegis verið skikkaður í sóttkví á innan við mánuði.

Maðurinn ræðir málið við Fréttablaðið en Landsréttur úrskurðaði gegn honum og staðfesti ákvörðun sóttvarnalæknis um sóttkví daginn fyrir gamlársdag.

Tveimur tímum eftir að Landsréttur kvað upp úrskurð sinn, fékk yngsti sonur mannsins jákvæða niðurstöðu úr PCR prófi og þar með lengdist sóttkví mannsins um hálfan mánuð.

Maðurinn er ósáttur við frelsissviptinguna en hann er þríbólusettur og margskimaður með PCR prófum.

Hann er giftur fjögurra barna faðir og hafa börn hans og eiginkona smitast eitt af öðru. Nú síðast yngsti sonur hans sem fyrr segir.

Í samtali við Fréttablaðið furðar maðurinn sig á þeim skilningi sóttvarnalæknis og dómstóla að allir sem sæti einangrun og sóttkví séu í rauninni í samstarfi við sóttvarnalækni og gagnrýnir dómstóla fyrir að koma sér undan því að taka afstöðu til þess tíma sem hann var látinn sæta sóttkví sem fari langt fram úr þeim tíma sem heimilaður er í sóttvarnalögum.

Þá segir hann meðalhófsregluna hafa verið þverbrotna í máli sínu, ekki síst þegar litið er til þess að tíminn sem hún tekur til sé yfir jólahátíðina sjálfa.

Fjölskyldumeðlimir greindust einn af öðrum

Forsaga málsins er sú að þann 11. desember bárust manninum smáskilaboð frá sóttvarnalækni, þar sem honum var tjáð að hann hefði verið skráður í sóttkví á heimili þar sem dóttir hans hafði greinst með Covid-19 deginum áður.

Var maðurinn þannig, af hálfu sóttvarnalæknis „beðinn um“ að vera í sóttkví á tímabilinu frá 11. desember til 25. desember 2021.

Þann 15. desember greindist síðan einn sona mannsins og kona hans svo hinn 19. desember. Úrskurðir bæði héraðsdóms og Landsréttar taka þó eingöngu til þeirrar sóttkvíar sem hann var skikkaður í eftir að konan hans greindist og taka því ekki tillit til þeirrar frelsissviptingar sem hann hafði þegar sætt dagana á undan, eftir að smit dóttur hans greindist.

Dóttir mannsins, sem varð með jákvæðu PCR prófi til þess að maðurinn var skikkaður í sóttkví, losnaði úr einangrun á miðnætti mánudagsins 20. desember.

Í samræmi við fyrri samskipti mannsins við starfsmenn landlæknis og ákvæði reglugerðar um sóttkví og einangrun, taldi hann sig lausan úr sóttkví daginn eftir að dóttir hans losnaði úr einangrun í kjölfar neikvæðs PCR-prófs.

Hann var hins vegar upplýstur um það í netspjalli á covid.is að sóttkví hans hefði verið framlengd, en honum hafði ekki verið tilkynnt það með neinum hætti fyrr en þá, og að útsetningardagur hans væri nú skráður 19. desember, í stað 11. desember, eða þann dag sem kona hans greindist með Covid-19.

Í kjölfarið óskaði maðurinn eftir að fá ákvörðun sóknaraðila senda skriflega sem hann fékk ekki. Í framhaldinu sendi hann tölvupóst á embætti landlæknis á Þorláksmessu, og fór fram á formlega ákvörðun sóttvarnarlæknis um að vera í sóttkví.

Á aðfangadag barst honum svo skrifleg ákvörðun sóknaraðila um að hann skyldi sæta sóttkví og var honum skylt að sæta sóttkví í 14 daga frá útsetningu, sem samkvæmt ákvörðuninni er skráð 19. desember þegar eiginkona hans greindist með Covid-19.

Var honum því í raun gert að sæta sóttkví til 2. janúar, ellegar til 30. desember gangist hann undir PCR-próf fyrr. Alls var manninum því gert að sæta sóttkví í í 23 daga í heildina, eða frá 11. desember 2021 til 2. janúar 2022.

Héraðsdómur staðfesti ákvörðun sóttvarnalæknis þann 28. desember og Landsréttur tveimur dögum síðar.

Tveimur tímum eftir uppkvaðningu úrskurðar í Landsrétti fékk yngsti sonur mannsins og fjórði fjölskyldumeðlimur hans, jákvætt PCR próf og þar með lengdist sóttkví mannsins.

Hann íhugar nú að fara með málið aftur til héraðsdóms, á grundvelli nýjustu ákvörðunar sóttvarnalæknis í kjölfar jákvæðs covid prófs yngsta sonarins.

Maðurinn telur málsmeðferð um sóttkví verulega ábótavant og gagnrýnir hve litla aðkomu Alþingi hefur að því. Um íþyngjandi inngrip í réttindi borgaranna sé að ræða, sem krefjist skýrra lagaheimilda.

Hann lýsir áhyggjum af því hve öryggisventlar á aðgerðir sóttvarnalæknis sem takmarka frelsi borgarana séu fábrotnir og gagnlitlir.