Þarfir milljarðamæringa

Þórður Snær Þórðarson skrifar í dag í leiðara í Kjarnanum um að fjölmiðlaumhverfið á Íslandi komst í sviðsljósið í liðinni viku.

Gunnar Smári Egilsson og Eyþór Laxdal Arnalds koma þarna báðir við sögu.

Leiðari Þórðar Snæs er samt um útgáfufélag Morgunblaðsins og Eyþór en ekki um Gunnar Smára. 

Þórður Snær rifjar upp hvað hefur drifið á daga Árvakurs og Morgunblaðsins frá því Davíð Oddsson kom að blaðinu snemma árs 2009 fyrir beiðni björgunarhópsins.

Hópurinn vildi hafa önnur tök á fréttum en venja var í blaðinu og þannig ná öðruvísi tökum á dægurumræðunni um þessi mál umfram önnur mál:  Ice-Save; Evrópusambandið; sjávarútveginn.

Þar til viðbótar skyldi unnið við það að koma frá Jóhönnu stjórninni sem sat árin 2009  til 2013.

Rétt er að minna á að björgunarhópurinn er ekki sérlega samstæður hópur útvegsmanna. Nýverið brúkaði einn þessara útvegsmanna þau orð að hann væri að selja sig út úr ævintýrinu.

En rekstur Áravakurs er afleitur. En árangur af starfi Davíðs Oddssonar er ekki endilega metin eftir krónum og aurum.

Gátlistinn yfir þann árangur er þessi - veiðigjöld lækkuðu;  eignarhald þjóðarinnar á auðlindin er ekki tryggt í stjórnarskrá; Ísland er og verður utangarðs ESB.

Þórður Snær segir:\"Heilt yfir hefur tekist að verja kerfin sem passa upp á að íslenska hagkerfið er sniðið að þörfum handfylli milljarðamæringa í stað þess að vera sniðið að aðstæðum launafólks í landinu\" 

 

 

 

 

 

 

 í stað þess að vera sniðið að aðstæðum launafólks í landinu.\"j