Fjölmiðlaskýrslu ekki beint gegn rúv

Björgvin Guðmundsson, formaður nefndar sem skilaði í gær skýrslu með tillögum í sjö liðum til að bæta rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla, segir við RÚV í dag að tillögurnar kortleggi allt sem nefndin telur mögulegt að gera en það sé stjórnvalda að segja til um framhaldið.
 

„Rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla er víðtækara vandamál heldur en bara staða RÚV,\" sagði hann í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun og hélt áfram; \"þannig að það má ekki fókusera bara á stöðu Ríkisútvarpsins á markaðnum og hvernig eigi að leysa það. Við erum þá svo fljót að fara í skotgrafir hvort þú ert með eða á móti rekstri Ríkisútvarpsins en þessi umræða á ekki að snúast um það. Hún á miklu frekar að snúast um einkareknu fjölmiðlana sem slíka og hvernig hægt sé að búa til umhverfi þannig að þeir fái þrifist og að við höfum öfluga fjölmiðla og starfsvettvang fyrir öflugt frétta- og blaðafólk,“ sagði Björgvin í Morgunútvarpinu.

Í skýrslunni leggur meirihluti nefndarinnar til að Ríkisútvarpið fari af auglýsingamarkaði en skiptar skoðanir voru um það í nefndinni hvort breytingin yrði þá til þess að auglýsingatekjur einkarekinna fjölmiðla myndu aukast. Þá er einnig lagt til að ríkið endurgreiði miðlum hluta kostnaðar af fréttavinnslu, áfengis- og tóbaksauglýsingar verði leyfðar og vaskur af áskriftum færist í neðra þrep, en alls eru tillögurnar í sjö liðum.