Hvers vegna urðu niðurstöðurnar svona óvæntar í forsetakosningunum í Bandaríkjunum? Fjölmiðlar um allan heim ræða þessa dagana við hvern fræðinginn á fætur öðrum - á stóru sjónvarpsstöðvunum og víðar um hvort og þá hvernig fjölmiðlar brugðust í aðdraganda forsetakosninganna ytra. Flestir af hinum hefðbundnu og stóru miðlum spáðu forskoti Clinton á meðan þróunin var að fara í allt aðra átt.
Þorbjörn Broddason, prófessor í Félags- og fjölmiðlafræði segir á Þjóðbraut í kvöld að mögulega hafi afneitun átt sér stað meðal ritstjórna og blaðamanna í kosningabaráttu Clinton og Trump. En sér í lagi eigi prentmiðlar erfitt uppdráttar, hvernig þeir eigi að lifa af samkeppni við nýrri miðla er þeim erfitt úrlausnarefni. Ekki síst stóðu miðlarnir frammi fyrir fordæmalausum aðstæðum sem voru þær að maður á borð við Donald Trump yrði forseti. Þeir hugsuðu hefðbundið við óhefðbundnar aðstæður.