Fjölmiðlanefnd er óstarhæf: „fjölmiðlanefnd hefur farið langt út fyrir sitt verksvið“

Ný fjölmiðlanefnd hefur ekki enn verið skipuð þrátt fyrir að skipunartími þeirrar síðustu hafi runnið út um síðustu mánaðamót. Þetta kemur fram á vef Ríkisútvarpsins. Menntamálaráðuneytið hefur beðið um tilnefningar frá Blaðamannafélagi Íslands en stjórn blaðamanna félagsins ákvað að draga úr starfi nefndarinnar vegna framgöngu hennar í málum sem varða umfjöllun fjölmiðla um einstök mál.

Hjálmar Jónsson, formaður Blaðamannafélags Íslands segir: „Fjölmiðlanefnd hefur farið langt út fyrir sitt verksvið“.  Á vef RÚV segir „að stjórn félagsins telji að settar séu íþyngjandi og óeðlilegar skorður við tjáningarfrelsinu með því að stjórnsýslunefnd á vegum framkvæmdavaldsins yfirfari og krefji blaðamenn upplýsinga um fréttamat þeirra og dagleg vinnubrögð.“

Í svari frá menntamálaráðuneytinu segir að Lilja Alfreðsdóttir hyggist endurskoða fjölmiðlalög. Ítarlega er fjallað um málið á vef RÚV.