Fjölmenni krafðist úrbóta í straumsvík

Fjölmennur baráttufundur starfsfólks álversins í Straumsvík var haldinn í hádeginu í dag til að minna á mikilvægi þess að eigendur álversins ljúki samningagerð við þá sem þar vinna.

Í tilkynningu frá samninganefnd starfsmanna hjá ÍSAL segir að stéttarfélög um allan heim grípi til aðgerða í dag, 7. október, til þess að krefjast góðra og öruggra starfa hjá Rio Tinto Alcan, sem er einn stærsti álframleiðandi í heimi. Álverið í Straumsvík sé rekið af Rio Tinto Alcan á Íslandi hf. sem er hluti af Rio Tinto. 

Gylfi Ingvarsson talsmaður samninganefndar starfsmanna hjá Ísal flutti þar stutt ávarp: \"Við hvetjum samninganefnd ÍSAL til að klára samninga við hluteigandi verkalýðsfélög eins fljótt og auðið er, án þess þó að störf almennra starfsmanna verði sett í almenna verktöku. Við viljum hvetja stjórnendur og samninganefnd ÍSAL  að virða og meta þann mannauð sem býr í þekkingu og reynslu þeirra starfsmanna sem hafa lagt starfsævi sína undir til að tryggja sem bestu  afkomu fyrirtækisins í gegnum árin. Þessir sömu starfsmenn hafa verið tilbúnir að leggja á sig ómælda vinnu þegar erfiðir tímar hafa verið hjá fyrirtækinu,\" sagði Gylfi á fundinum.