Samkvæmt staðfestum tölum af fyrri helmingi þessa árs virðist ljóst að fjölgun erlendra ferðamanna á þessu ári verður ekki undir 25% ef mið er tekið af ferðamynstri síðustu ára.
Þessar tölur merkja að erlendir ferðamenn á þessu ári verða ekki undir 1,2 milljónum og líklega 50 þúsund betur. Þetta er nokkurn veginn í samræmi við spár greiningardeildar Íslandsbanka um fjölgun ferðamanna á þessu ári en athygli hefur vakið að greinigardeildir hinna vipskiptabankanna hafa verið nokkuð fjarri raunverulegri þróun í fjölgun ferðamanna á síðustu árum.
Miðað við sömu þróun verða erlendir ferðamenn orðnir tvær milljónir hér á landi árið 2020 og fjórar milljónir áratug síðar.
Ferðaþjónustan aflar nú meiri gjaldeyris en sjávarútvegur og er þar að auki orðin mannaflsfrekasta atvinnugrein landsins.