Fjölflokkastjórnir og aðrar

Meðal þess sem verður rætt í þætti Þjóðbrautar í kvöld hvort raunhæft sé að halda úti ríkisstjórmn þar sem allt að fimm flokkar koma að. Eins hvort slík ríkisstjórn geti unnið í erfiðum málum, svo sem að lægja öldurnar á vinnumarkaði, innviðauppbyggingu og öllu hinu sem gera þarf.

Gestir þáttarins verða þrír; Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi ráðherra, Álfheiður Eymarsdóttir Pírati og svo einn af reyndari blaðamönnum landsins, Reynir Traustason.

Þjóðbraut er á dagskrá klukkan 21:00 í kvöld.

Stjórnandi þáttarins í kvöld er Sigurjón M. Egilsson.