Fjöldi sólarstunda hefur áhrif á íssölu

Nær tvöfalt fleiri sólarstundir voru á tímabilinu 1. júní til 19. júlí í ár samanborið við sama tímabil í fyrra. Gott veður á höfuðborgarsvæðinu hefur veruleg áhrif á íssölu, en sala á ís hjá Kjörís jókst um 15-20% milli ára.

Þetta kemur fram í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins í dag. 

Sólríkir sumardagar hafa verið áberandi í sumar, en samkvæmt Trausta Jónssyni, veðurfræðingi voru þær 305 í ár samanborið við 163 á sama tímabili í fyrra. Sólarstundir geta haft veruleg áhrif á íssölu en sömuleiðis skiptir máli hvar góða veðrið er staðsett. Guðrún Hafsteinsdóttir, sölu- og markaðsstjóri Kjöríss segir að gott veður á landsbyggðinni, líkt og einkenndi sumarmánuðina 2013 og 2014, skili ekki eins mikilli sölu og gott veður sunnan heiða: „En þar vantaði fólkið. Þegar við fáum ekki þessa góðu daga á höfuðborgarsvæðinu þá finnum við gríðarlega fyrir því.\"

Gott veður á höfuðborgarsvæðinu í sumar hafi því haft góð áhrif á íssölu, en salan var 15-20% meiri í ár en í fyrra.