Fjöldi öryrkja horfir fram á að þurfa að endurgreiða Tryggingastofnun ríkisins vegna þess að hann hefur fengið ofgreiddan lífeyri á undanförnum árum, á stundum all verulegar upphæðir.
Ástæðu þessa má rekja til eingreiðslna frá lífeyrissjóðum sem stofnuninni hefur reynst erfitt að meta í árslok, en Sólveig Hjaltadóttir framkvæmdastjóri upplýsingasviðs Tryggingastofnunar segir við Fréttablaðið í dag, sem fjallar um málið, að tilfellum sem þessum hafi fjölgað mjög á síðustu árum eftir að lögum var breytt í þá veru að lífeyrisþegum var gert að sækja rétt sinn hjá lífeyrissjóðum.
Þeir einstaklingar sem ekki hafi sótt um lífeyri áður hjá lífeyrissjóðum eigi uppsagnaðan rétt sem geti numið nokkrum milljónum króna. Greiðslurnar berist gjarnan í árslok sem skekki útreikninga Tryggtingastofnunar með tilheyrandi endurútreikningi bóta.