Fjöldi fólks kom saman við Reykjavíkurtjörn í gærkvöld til að minnast þess að 70 ár eru liðin frá voðaverkunum í Hiroshima og Nagasaki þegar kjarnorkusprengjr grönduðu báðum borgunum og 300 þúsund manns lágu í valnum.
Kertafleyting fór að vanda fram við suðvesturenda Reykjavíkurtjarnar, en á Akureyri var samskonar atburður þar sem kertum var fleytt á Pollinum.
Vindáttin í Reykjavík var ekki sérlega heppileg í gærkvöld sem gerði það að verkum að kertin náðu ekki siglingu út á Tjörnina eins og einatt hefur glatt augu þeirra sem hafa verið viðstaddir minningarstundina.