Fjöldi íslenskra barna beitt ofbeldi

Geir Gunnlaugsson prófessor við Háskóla Íslands og fyrrverandi landlæknir og Jónína Einarsdóttir mannfræðingur hafa rannsakað ofbeldi gegn börnum á Íslandi. Geir segir niðurstöðu samantektar á rannsóknum á ofbeldi gegn börnum vera þá að reynsla íslenskra barna af ofbeldi hérlendis sé að minnsta kosti á pari við og í sumum tilvikum meiri en á hinum Norðurlöndunum. Þetta segir hann í samtali við Mbl.is.

Geir flutti erindi um samantekt á rannsóknum á ofbeldi gegn börnum á ráðstefnu í Háskóla Íslands í gær og vísaði þar á meðal til rannsóknar sem sýndi fram á að stór hluti Íslendinga hefði upplifað ofbeldi í æsku. Nærri helmingur, eða 48 prósent, höfðu upplifað einhvers konar líkamlegt ofbeldi í æsku og um 69% prósent þátttakenda sögðust hafa orðið fyrir andlegu ofbeldi í æsku.

Ofbeldið virðist hvorki vera að aukast né minnka en birtingarmyndir þess eru aðrar en áður var að mati Geirs. Í samtalinu við Mbl.is segir Geir minna um líkamlegt ofbeldi en áður var en að andlegt ofbeldi hafi aukist á móti. Þátttakendur í rannsókninni sem voru 30 ára eða eldri voru um það bil tvisvar sinn­um lík­legri til þess að hafa upp­lifað lík­am­legt of­beldi í æsku en þeir sem yngri voru og þeir sem voru 30 ára eða yngri voru um það bil þris­var sinn­um lík­legri til þess að hafa upp­lifað and­legt of­beldi í æsku. 

„Þeir sem eru yngst­ir í þeim hópi sem við rædd­um við eða svöruðu okk­ar spurn­ing­um sögðust frek­ar hafa reynslu af and­legu of­beldi held­ur en lík­am­leg­um refs­ing­um. Höfn­un, mis­mun­un og þess hátt­ar fell­ur und­ir and­legt of­beldi þannig að það er hugs­an­legt að birt­ing­ar­mynd­ir of­beld­is séu að breyt­ast“, segir Geir í samtalinu við Mbl.is.