Jarðskjálftahrina varð vestur af Reykjaneshrygg í gærkvöld. Skjálftarnir fundust víða í byggð, meðal annars sums staðar á höfuðborgarsvæðinu og allt upp á Skaga.
Að því er fram kemur á vef Veðurstofunnar hófst skálftahrinan um klukkan níu í gærkvöld um það bil fjóra kílómetra norðvestur af Geirfugladrangi á Reykjaneshrygg. Sterkustu skjálftarnir mældust um fjögur stig, en tilkynningar hafa borist frá Reykjanesbæ og Akranesi um að skjálftarnir hafi fundist þar.
Hrinan er enn í gangi, en heldur hefur dregið úr henni síðan hún hófst. Skjálftarnir eru þó orðnir um og yfir hundrað talsins.
Samkvæmt upplýsingum á vef Veðurstofunnar mældust fimm skjálftar stærri en þrjú stig.
\"Svona hrinur eru ekki óalgengar og koma oft fyrir þarna,“ sagði Bryndís Gísladóttir hjá Veðurstofu Íslands í samtali við ruv.is í gærkvöld. \"Það þarf ekki að vera merki um að eitthvað meira sé í aðsigi.“