Fjöldi barna á íslandi fer minnkandi

Fjölgun Íslendinga á næstu árum verður einkum og sér í lagi í hópi eldra fólks en það mun hafa mjög mismunandi áhrif á stofnanir samfélagsins eins og vel kemur framn í þættinum Sjónarhorni í kvöld en þar fjallar Þórdís Lóa Þórhallsdóttir um margvísleg áhrif fjölgunar eldra fólks í samfélaginu.


Helstu vandamál sem samfélagið stendur frammi fyrir við væntanlega breytingu á aldurssamsetningu þess er skortur á hjúkrunarheimilum, að því er dr. Katrín Ólafsdóttir, lektor við Háskólann í Reykjavík bendir á í þættinum í kvöld. Góð staða lífeyrissjóðanna geti þó vegið upp þann vanda að hennar sögn.


Félags- og húsnæðismálaráðherra, Eygló Harðardóttir, segir í þættinum að aukin tækniþekking muni að einhverju leuyti geta mætt fjölgun aldraðra, því þótt meira álag verði á vissulega heiulbrigðiskerfið gefist æ fleira fólki kostur á að búa lengur heima hjá sér. 


Ómar Harðason fagstjóri á Hagstofu Íslands segir að um leið og öldruðum fjölgi muni barnafjöldinn líklega fara  minnkandi, í besta falli standa í stað. Því standi menntakerfinu ekki ógn af mannfjöldaþróuninni í íslensku samfélagi. Fjöldi kennara og skóla komi til með að verða óbreyttur í framtíðinni. Því verði núverandi menntakerfi fyrir litlum eða engum þrýstingi vegna þessa breytta mynsturs samfélagsins sem fram undan er.


Meira um mannfjöldaþróun íslenska samfélagsins í þætti Sjónarhorns á Hringbraut kl. 21:00 í kvöld.