Búið er að opna fjöldahjálparstöð á Fosshóteli Vestfjarða á Patreksfirði. Rýming nokkurra húsa í bænum hefur átt sér stað vegna hættu á krapasnjóflóðum í nótt.
Rýmingin er samkvæmt tilmælum frá Veðurstofu Íslands sem lýst hefur yfir hættustigi í hluta Patreksfjarðar. Á mbl.is segir að 40 manns hafi þurft að yfirgefa heimili sín en um 30 manns munu gista á hótelinu í nótt.
Mjög hvössu og vondu veðri er spáð í nótt fyrir vestan líkt og víðar um landið, en ofsaveður gengur yfir landið.