Xd: húsnæðis-, menntamálin og fleira rætt

Kosningasjónvarp stjórnmálaflokkanna er á dagskrá klukkan 22.00 og í kvöld er þáttur Sjálfstæðisflokksins á dagskrá, Á réttri leið. Gestir þáttarins eru Elvar Jónsson, Bryndís Haraldsdóttir og Vilhjálmur Árnason sem fara um víðan völl í umræðum sínum með Rósu Guðbjartsdóttur þáttastjórnanda. Meðal þess sem þau ræða í þætti kvöldsins er í hverju umbætur LÍN frumvarpsins svokallaða felast, hvers vegan stöðugleikinn skiptir heimilin svona miklu máli og hvaða leiðir er hægt að fara til að leysa úr húsnæðisvandanum. Þá ræða þau einkarekstur í menntakerfinu og fleira.

Þátturinn er á dagskrá klukkan 22.00 og endursýndur á morgun, fimmtudag og um næstu helgi. Hér má sjá sýnishorn úr þætti kvöldsins.