Fjölbreytni bara fyrir þá efnaðri!

"Kjósi fólk einhver blæbrigði skal það borga fyrir. Það er einmitt stefna ríkisstjórnarinnar að sníða flestu fólki þrengri stakk. Fyrir fjölbreytnina skal borga sérstaklega, fjölbreytni á bara að vera fyrir þá sem eiga peninga," skrifar Valgerður Bjarnadóttir þingmaður í nýjasta pistli sínum á hringbraut.is sem fjallar um menntakerfi á villigötum.


Hún segir menntamálaráðherra einblína á styttingu framhaldsnáms en skella skollaeyrum við þeim gagnrýnisröddum sem segja að það muni á endanum leiða til aukins kostnaðar á háskólastigi. Um það séu flestir menntamenn sammála, krakkarnir komi ekki jafnvel undirbúnir og þurfi því hugsanlega lengri tíma í háskólanum. "Af hverju er það ekki skoðað ofan í kjölinn," spyr Valgerður í pistli sínum og segir um of einblínt á að stytta framhaldsskólann; miklu nær væri að stytta grunnskólann.


"Menntamálaráðherrann hefur gefið sig út fyrir að vera maður frjálslyndis og fjölbreytileika sem því gjarnan fylgir. En hann virðir að engu hugmyndir Menntaskólans í Reykjavík um að taka við nemendum úr níunda bekk . Hvers vegna má það ekki vera valkostur ef eftirspurn er eftir þeirri námstilhögun. Af hverju þarf að móta alla í sama farið," spyr þingkonan enn og bendir á að námstíminn til stúdentsprófs sé ekki bara framhaldsskólinn heldur líka allur grunnskólinn. "Skrýtið finnst mér að stytta fjórtán ára námstíma með því að horfa einungis til síðustu fjögurra áranna. Ennþá skrýtnara er að menntamálráðherrann veigrar sér við að ræða þessar breytingar," skrifar hún.


Valgerður óttast að kerfisbreytingin gagnist efnaðra fólki en síður tekjulágum: "Þeim sem eru 25 ára eða eldri er beint í námsleiðir sem greiða þarf fyrir. Þegar öllu er á botninn hvolft er ekki ólíklegt að breytingarnar leiði til þess að almenna skólakerfið veiti einungis einslita lágmarksþjónustu."