„Fjögurra ára gömul dóttir mín hringdi inn jólin"

Sr. Davíð Þór Jóns­son prestur í Laugarneskirkju sagði frá því í vikunni með Gísla Marteini í gærkvöld að fjögurra ára gömul dóttir hans hafi hringt inn í jólin í kirkjunni á aðfangadagskvöld.

Aðventan var óvenjuleg fyrir presta í landinu enda fóru engar messur fram eins og venjan er á aðfangadagskvöld.

„Þetta voru óvenjuleg jól, ég var kominn heim til mín fimm mínútur yfir sex. Ég var að vísu í kirkjunni klukkan sex á aðfangadagskvöld vegna þess það þarf einhver að hringja inn í jólin," sagði Davíð og hélt áfram.

„Yfirleitt er nú einhver í kirkjunni sem getur hringt jólin inn en hún var tóm þannig ég fór í málið ásamt fjögurra ára gamalli dóttur minni sem fékk að hringja inn í jólin í Laugarneskirkju."