Fjögur smit utan sóttkvíar – 24 síðan á sunnudag – Flest Delta-smit

Alls greindust sjö einstaklingar með COVID-19 í gær en af þeim sem greindust voru fjórir utan sóttkvíar við greiningu. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Embætti landlæknis.

Allir sem greindust voru bólusettir samkvæmt tilkynningu almannavarna.

Fréttablaðið greinir frá því að frá því á sunnudag hafa 24 einstaklingar greinst með veiruna innanlands, þar af voru sextán utan sóttkvíar við greiningu. Langflestir þeirra sem hafa greinst í vikunni eru fullbólusettir og meginþorri smita er að Delta-afbrigðinu svokallaða.