Fjögur náttúruverndarsamtök kæra árneshrepp vegna hvalárvirkjunar

Landvernd, Rjúkandi, Náttúruverndarsamtök Íslands og Ungir umhverfissinnar hafa kært ákvörðun sveitarstjórnar Árneshrepps um að gefa út framkvæmdaleyfi vegna fyrsta áfanga Hvalárvirkjunar til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Þetta kemur fram í sameiginlegri fréttatilkynningu frá samtökunum.

Samtökin fjögur kveðjast leggja fram kæruna á grundvelli þess að náttúruverndarlög séu brotin, þar sem taka eigi efni úr stöðuvatni sem njóti verndar og að skerða eigi víðerni sem njóti verndar. Samtökin telja einnig óheimilt að skipta skipulagi og framkvæmdum upp í hluta, að taka eigi ákvörðun um virkjun í einu lagi. Þá segja þau að sú framkvæmd sem leyfið er veitt fyrir hafi ekki farið í gegnum rammaáætlunarferli sem væri samþykkt af Alþingi.

Auk þessa eru að mati samtakanna lög um umhverfismat og útgáfu framkvæmdaleyfis brotin þar sem ekki sé tekið tillit til álits skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum sem hafi verið virkjuninni mjög óhagfellt, auk þess sem hluti af fyrirhugaðri efnistöku hafi ekki verið umhverfismetinn.

Samtökin fjögur hafa sömuleiðis bent sveitarstjórn Árneshrepps og Vesturverki á það áður í formlegu umsagnarferli að það umfangsmikla rask sem fara á í á óbyggðum víðernum megi auðveldlega forðast ef markmiðið er að stunda rannsóknir. Samtökin segja að ekki hafi verið brugðist við þeim ábendingum nema með fullyrðingum um kostnað sem ekki væru studdar með gögnum.