Fjárréttir nýjung í ferðaþjónustu

Það virðist sama hvar borið er niður á landinu. Út um allt hafa opnast ný tækifæri til að auka þjónustu fyrir erlenda ferðamenn. Einn liður í þessu eru skipulagðar ferðir með erlenda ferðamenn í fjárréttir. Bustravel Iceland hefur nú hrundið af stað ferðum þar sem færi gefst á því að ferðamenn hitti íslenska bændur og kynnist þeirri einstæðu upplifun sem réttarstörf eru í huga margra.

Í dag, 12. september, verður boðið upp á fyrsta \"réttarævintýrið\". Ferðin tekur allt að 10 klukkustundir en þekktar náttúruperlur verða einnig til skoðunar á ferðalaginu. Forsvarsmenn ferðanna láta hafa eftir sér í Bændablaðinu að innlendir ferðamenn eigi þess einnig kost að kynna sér bænda- og réttarmenningu. Sjá þeir mikil sóknarfæri í sveitum landsins í ferðaþjónustugreininni sem vex og dafnar ár frá ári.