Nýfrjálshyggjan hefur leitt til þess að glórulaus auðsöfnun yfirstéttar er talin eðlileg og sjálfsögð skipan mála og nú er svo komið að jafnvel á Íslandi að hluti þjóðarinnar á hvorki til hnífs eða skeiðar. Þetta kemur fram í pistli sem Guðmundur Gunnarsson, fyrrverandi formaður Rafiðnaðarsambandsins skrifar í Stundina. Þar segir einnig:
„Það sem af er þessari öld hefur farið fram markviss niðurskurður í velferðarkerfinu og nú er staðan sú að það skortir nokkur hundruð milljarða eigi að koma innviðum íslensks samfélags í eðlilegan farveg“.
Oft er rætt um svokallað SALEK samkomulag, eða norræna samningamódelið. SALEK er skammstöfun fyrir SAamstarf um Launaupplýsingar og Efnahagsforsendur Kjarasamninga og samningalíkan.
„Kjarasamningum hér á landi hefur oft verið lokað með yfirlýsingu frá þáverandi ríkisstjórn um aðgerðir sem auki kaupmátt umfram umsamdar launahækkanir. Í þessu sambandi má nefna yfirlýsingu ríkisstjórnar Sigmundar Davíðs í lok árs 2013 sem var samin eftir fundi með samtökum vinnumarkaðarins\", skrifar Guðmundur í Stundina og lesa má hér.