Fjármálakerfinu allt, eða fólkinu allt!

Þær ríkisstjórnir, sem setið hafa frá hruni hafa lítið sem ekkert gert til að bæta úr ástandinu á húsnæðismarkaði. Mantran hjá bæði norrænu velferðarstjórn Jóhönnu og Steingríms og verðtryggingarstjórn Sigmundar Davíðs og Bjarna hefur verið sú sama; fjármálakerfinu allt!

Þetta skrifar hagfræðingurinn Ólafur Arnarson í nýjasta pistli sínum á Hringbraut en þar segir hann húsnæði á Íslandi vera alltof dýrt - og leggur fram róttækar tillögur sínar um umbætur á húsnæðismarkaði.

Hann segir að í einu og öllu sé vitlaust gefið: Ekki einasta sé húsnæði hér á landi of dýrt heldur séu laun á Íslandi mun lægri en í nágrannalöndunum og vextir hér séu að auki miklum mun hærri en þar þannig að greiðslubyrði Íslendinga af hverri milljón er mun hærri en greiðslubyrði Dana, Norðmanna og annarra í grennd við Ísland. Þá sé leigumarkaður á Íslandi eins og ýkt sviðsmynd úr vísindaskáldsögu sem á að gerast einhvern tímann eftir kjarnorkustyrjöld.

Ólafur nefnir úrbætur í mörgum liðum og telur þær allar raunhæfar. Fyrst sé að viðurkenna fákeppni á bankamarkaði. Ein leið sé að komast inn á stærra myntsvæði til að fá hingað erlendar fjármálastofnanir, en gerist ekki á einni nóttu \"þannig að við verðum að bregðast við fákeppninni sem hér ríkir,\" skrifar Ólafur og telur upp ráð sín:

  • Afnema verðtryggingu af öllum nýjum húsnæðis- og neytendalánum og tryggja með lögum að eldri lánum sé hægt að breyta án uppgreiðslu- eða refsigjalda í óverðtryggð lán.
  • Setja hámark á leyfilegan mun á vöxtum inn- og útlána, þannig að t.d. aldrei megi muna meira en 2,5 prósentustigum á inn- og útlánum. Vilji banki ekki greiða meira en 1 prósent á innlán skal honum óheimilt að krefjast meira en 3,5 prósenta á útlán.
  • Lán til fyrstu kaupa á íbúðarhúsnæði skulu vera afborgunarlaus fyrstu 5 -10 árin og einungis greiddir vextir. Verðtryggð lán eru þess eðlis að í raun eru ekki allir vextir greiddir fyrstu 2/3 hluta lánstímann þannig að höfuðstóll lána hækkar. 
  • Sveitarfélögum skal skylt að tryggja nægilegt framboð lóða undir fjölbreytt íbúðarhúsnæði gegn gjaldi sem einungis má standa undir raunverulegum kostnaði, en í dag eru þau farin að líta á lóðasölu sem eina sína helstu tekjulind. 
  • Íbúðareigendum skal heimilt að leigja skattfrjálst út herbergi eða aukaíbúðir í þeirri fasteign, sem þeir hafa lögheimili. Hér þarf vitanlega að setja einfaldar reglur sem koma í veg fyrir að menn reisi blokkir og leigi þær út skattfrjálst.

\"Ef vilji væri fyrir hendi hjá stjórnvöldum væri hægt að hrinda þessum aðgerðum í framkvæmd fyrir haustið. Vilji er allt sem þarf, sagði skáldið,\" skrifar Ólafur og gerir þau orð að sínum - en ítarlegri útfærslur tillagna hans má lesa í pistli hans hér á hringbraut.is.