Fjármálakerfið hefur valtað yfir almenning

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, átti von á mótframboði þegar kjörtímabil hans rann sitt skeið. Þar sem það kom ekki var hann sjálfkjörinn til áframhaldandi setu og telur það merki um ákall eftir róttækari tón. Kjarninn greinir frá.

„Já ég átti von á mót­fram­boði, alla­vega miðað við hvernig orð­ræðan hefur verið í kringum bæði mig og emb­ætt­ið. En svo var ekki og ég tek því þannig að sjálf­sögðu að það séu ekki gerðar frek­ari athuga­semdir við mín störf, alla­vega ekki af mínum félags­mönn­um. Þessi tónn sem er að breyt­ast í hreyf­ing­unni er þessi tónn sem ég var að kalla eftir þegar ég var í stjórn VR. Það sýn­ir sig bara á þeim breyt­ingum sem orðið hafa innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar að það er verið að kalla eftir nýjum rót­tæk­ari tón frá verka­lýðs­hreyf­ing­unn­i.“

Þetta sagði Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, í við­tali við Þórð Snæ Júlíusson, rit­stjóra Kjarn­ans, í frétta- og umræðu­þætt­inum 21 á Hring­braut á miðvikudagskvöld.

Ragnar Þór segir margt í sam­fé­lag­inu hafa orsakað það að eft­ir­spurn sé eftir þessum rót­tæk­ari tón. „Við vitum hvernig fjár­mála­kerfið og fjár­mála­öflin hafa nán­ast valtað yfir almenn­ing, ekki bara í aðdrag­anda hruns­ins heldur líka í eft­ir­málum þess.“

Hann telur það nauð­syn­legt fyrir fólk að finna að það hafi sterkan málsvara til að takast á við slíka stöðu. „Nú hefur verka­lýðs­hreyf­ingin gríð­ar­lega mik­inn og öfl­ugan fjár­hags­legan slag­kraft og mikla og sterka teng­ingu inn í lífeyrissjóðakerfið og við eigum að sjálf­sögðu að láta til okkar taka þegar kemur að því að taka á málum sem snúa að hags­munum sem vinna gegn okk­ur.“

Viðtalið við Ragnar Þór í heild sinni er að finna hér: