Í Kastljósi á RÚV í gærkvöldi sagði Þórey S. Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Landssambands lífeyrissjóða, að það sé Fjármálaeftirlitsins að dæma hvort ákvörðun VR um að afturkalla umboð fjögurra stjórnarmanna í stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna, eftir að sjóðurinn ákvað að hækka vexti á lánum til sjóðfélaga, hafi verið ólögmæt. Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, sagði að um geðþóttaákvörðun stjórnarmanna LV hafi verið að ræða.
Stjórn LV ákvað fyrir um mánuði síðan að hækka vexti á lánum til sjóðfélaga úr 2,06 prósentum í 2,26 prósent. Hækkunin var ákveðin tveimur dögum eftir að Seðlabankinn lækkaði stýrivexti um hálft prósent. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, eru því nú 4 prósent.
VR gagnrýndi hækkun LV og sagði hana vinna gegn markmiðum kjarasamninganna. VR skipar flesta stjórnarmenn sjóðsins, fjóra talsins, og ákvað stéttarfélagið í síðustu viku að afturkalla umboð þeirra allra og finna nýtt fólk í þeirra stað.
Þessi ákvörðun VR hefur verið gagnrýnd fyrir að vega að sjálfstæði stjórna lífeyrissjóðanna og rannsakar FME nú hvort það sé löglegt að skipta stjórnarmönnum út með þessum hætti.
Í Kastljósi í gær sagði Þórey að hún teldi ákvörðun VR fordæmalausa og að það væri mjög varhugavert þegar gripið sé inn í störf stjórnarmanna. „Þeir eiga að vera sjálfstæðir í sínum störfum, það á ekki að beita þá þrýstingi hvorki af atvinnurekendum eða launþegahreyfingum. Það skiptir miklu máli að þeir séu sjálfstæðir og sinni sínum umboðsskyldum, það er að gæta að hagsmunum sjóðfélaganna.“
Ragnar Þór sagði að það eina sem stæði eftir að yfirferð VR á greinargerð LV vegna ákvörðunarinnar um hækkun á vöxtum lokinni hafi verið geðþótti. „Við kölluðum eftir greinargerð frá Lífeyrissjóði verzlunarmanna og hún var nú ansi þunn verð ég að segja, og rökstuddi í rauninni ekki þessar ákvarðanir á nokkurn hátt. Hélt hvorki vatni né vindum. Það eina sem stendur eftir í okkar yfirferð yfir þeirra svörum er einfaldlega geðþótti.“