Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar til næstu fimm ára, sem kynnt var um helgina, er brostin áður en hún kemur úr prentsmiðju,“ segir Þorsteinn Víglundsson, þingmaður Viðreisnar, í færslu á Facebook-síðu sinni.
Fjármálaáætlun fyrir árin 2020 til 2024 var kynnt í fjármála- og efnahagsráðuneytinu á laugardag. Í kynningu á henni kom fram að vonast væri til þess að hún myndi vega þungt í því verkefni ríkisstjórnarinnar að viðhalda efnahagslegum stöðugleika og hagsæld. Gert var ráð fyrir því að skattlagning á heimili og fyrirtæki lækki sem og skuldastaða ríkissjóðs.
Þorsteinn segir að efnahagsforsendur áætlunarinnar séu og hafi frá upphafi verið fullkomlega óraunhæfar. Þetta hafi Viðreisn bent ítrekað á í umræðu um fyrstu áætlun stjórnarinnar fyrir ári síðan.
Nánar á