Fjárlögin: enginn sáttavilji á alþingi

Stjórnarandstaðan á Alþingi virðist ekki ætla að gefa eftir nokkur sinna mála við umræðu um fjárlög næsta árs, en hún setur það sem skilyrði fyrir lyktum umræðunnar að meira fjármagn fáist til Landspítalans og RÚV, svo og að lífeyrisþegar fái afturvirkar kjarabætur.

Ekkert útlit er fyrir að umræðum um fjárlögin linni næstu daga, en þær hafa nú varað í 56 klukkustundir, lengur en undir árslok 2012 þegar þáverandi stjórnarandstaða setti met í langlokum í ræðupúlti með 49 tíma meintu málþófi.

Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar hefur kallað eftir nýjum vinnugbrögðum við umræðu um fjárlögin, segir engan brag vera á því vinnulagi sem nú tíðkist, en á sama tíma minnir stjórnarandstaðan hana á hvernig hún hafi borið sig að umræðunni á síðasta kjörtímabili þar sem ekki hafi kveðið við nokkurn sáttatón af þáverandi stjórnarandstæðingum.

Þau tíðkast því hin breiðu spjótin á Alþingi sem er nú upplýst allar nætur eins og hver önnur jólakúla við Austurvöll, þótt óneitanlega heyrist engin falleg jólalög innan úr henni þessi skömmu dægur aðventunnar.