Fjárlög samþykkt á alþingi

Í nýsamþykktum fjárlögum koma fram áherslur fyrsta ráðuneytis Katrínar Jakobsdóttur á viss lykilverkefni. Verkefni sem stjórnarsáttmálinn kveður á um. Einkum má nefna fjármögnun heilkbrigðiskerfisins. Þá má nefna eflinu menntakerfsins. Samgöngumál fá sinn skerf sem og úrbætur í málefnum brotaþola kynferðisofbeldis. Lögin voru samþykkt með tæpum þrjátíu og þriggja milljarða afgangi.

Þessi nýsettu fjárlög endurspegla trausta stöðu efnahagsmála á Íslandi og eru áform ríkisstjórnarinnar um skuldalækkun ríkissjóðs áform sem takast á við útgjaldaáform ríkisstjórnarinnar en vonir standa til mikilla fjárveitinga í samfélagslega innviði. Langtímastefna þessarar ríkisstjórnar er efnhagslegur stöðugleiki á sama tíma og styrkja skal innviði og tryggja samkeppnishæfni atvinnuveganna til framtíðar.

[email protected]