Fjárlagafrumvarp 2020: tekjuskattur einstaklinga lækkar og lækkunarferli flýtt

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra kynnti í morgun fjárlagafrumvarp fyrir árið 2020. Frumvarpið verður lagt fram á Alþingi þriðjudaginn 10. september þegar 150. löggjafarþing kemur saman. Kynning hefur ekki áður farið fram jafn tímanlega fyrir fyrstu umræðu, en tilgangurinn er sá að mæta óskum þingmanna um betri fyrirvara til að kynna sér efni frumvarpsins.

Í frumvarpinu kemur fram  að tekjuskattur einstaklinga verði lækkaður hraðar en áform voru um þannig að lækkunin komi að fullu fram árið 2021 í stað 2022. Við þessa aðgerð hækka ráðstöfunartekjur þeirra tekjulægstu um rúmlega 120 þúsund krónur á ári. Er heildarumfang hennar á ári um 21 milljarður króna, sem samsvarar um 10 prósent af tekjum ríkisins af tekjuskatti einstaklinga. „Er þetta mikilvægur liður í því að styðja við heimilin þegar hægir á í atvinnulífinu,“ segir í tilkynningu frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu.

Auk lækkunar tekjuskatts kemur til framkvæmdar seinni hluti 0,5 prósentustiga lækkunar tryggingagjalds, en gjaldið var lækkað um 0,25 prósentustig í upphafi árs 2019. Um áramót hefur tryggingagjald því verið lækkað úr 7,69 prósent í 6,35 prósent frá árinu 2013.

Í frumvarpinu er einnig greint frá áformum um öfluga opinbera fjárfestingu, eflingu samgöngumála, styrkingu rannsóknarstarfs, stuðning við húsnæðismál tekjulægri hópa og hvetjandi aðgerða til orkuskipta. Þá kemur fram að skuldir ríkisins lækki áfram.