Fjárlagafrumvarp 2020: 400 milljónir til einkarekinna fjölmiðla

Fjárlagafrumvarp fyrir árið 2020 var kynnt í morgun. Samkvæmt því munu 400 milljónir króna renna í stuðningsgreiðslur við einkarekna fjölmiðla á næsta ári. Auk þess aukast framlög ríkisins til RÚV um 190 milljónir króna á næsta ári. Kjarninn greinir frá.

Af þessum 400 millj­ónum eiga 50 millj­ónir króna að renna til text­unar og tal­setn­ing­ar. Fjölmiðlafrumvarp Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra hefur verið afgreitt úr ríkisstjórn þó hún eigi enn eftir að mæla fyrir því á Alþingi.

Til við­bótar við 350 milljón króna greiðslu vegna beinna styrkja til einka­rek­inna fjöl­miðla eru áform um að styðja við þá fjölmiðla með stuðn­ingi sem nemur allt að 5,15 pró­­­­sent af launum starfs­­­­fólks á rit­­­­stjórn, sem fellur undir lægra skatt­­­­þrep tekju­skatts­­­­stofna. Umfang þeirrar aðgerðar er metið 170 millj­ónir króna.

Útvarps­gjaldið hækkar um 2,5 pró­sent milli ára og áætl­aðar tekjur RÚV vegna þeirra aukast um 190 millj­ónir króna. Áætlað er að útvarps­gjaldið verði 4.780 millj­ónir króna á næsta ári.