Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, hefur keypt sér raðhús og flytur úr íbúð Hauks Harðarsonar, stjórnarformanns Orku Energy. Krafa kom upp um að Illugi segði af sér þegar upp komst um tengsl hans og meint hæði gagnvart Hauki eftir að Illugi seldi Hauki íbúð sína við Ránargötu en leigði hana aftur á vildarkjörum. Boðsferð Hauks til Kína í kjölfarið vakti spurningar.
Stundin greinir frá þessum fasteignaviðskiptum Illuga. Kaupin benda til að hann sé laus úr fjárhagskreppu sem vakið hefur upp spurningar um sjálfstæði ráðherrans og hæði gagnvart fjármagnseigendum.
Raðhúsaíbúðin er í Ljósalandi í Fossvoginum eftir því sem fram kemur í frétt Stundarinnar.
„